Pantanir: Við hjá unlabel tökum við pöntunum þegar greiðsla hefur borist. Þegar greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti.
Greiðsla: Hægt er að greiða allar pantanir með korti í gegnum KORTA (Rapyd), aðrir greiðslumátar eru Aur, Netgíró og Pei.
Þú samþykkir að veita núverandi, heilar og nákvæmar upplýsingar fyrir öll kaup sem gerð eru í versluninni, þar á meðal netfangið þitt, kreditkortanúmer og gildistíma, svo að Unlabel geti lokið viðskiptum þínum og haft samband við þig eftir þörfum.
Sendingarmáti: Pantanir okkar er hægt að fá sendar frítt innan Höfuðborgarsvæðisins ef verslað er fyrir 4.000 kr eða meira og eru þær sendar vikulega. 990 kr sendingargjald leggst ofan á vörur undir 4.000 kr. Frítt, ef verslað er fyrir 4.000 kr eða meira, er að senda innan erftirtalinna póstnúmera:
101, 102, 103, 104, 105, 107, 108, 109, 110, 111, 112, 113, 170, 200, 201, 202, 203, 206, 210, 220, 221, 225.
Pantanir, utan ofangreindra póstnúmera, eru sendar með Íslandspósti: Sendingargjald leggst aukalega ofan á verð vöru, 1.690 kr. Það tekur allt að 1 virkan dag að afgreiða pöntunina. Sendingartími er 2-3 virkir dagar.
Hjá okkur gilda afhendingar-,ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru, utan Höfuðborgarsvæðisins.
Unlabel ber ekki ábyrgð á meðhöndlun starfsfólks Póstsins við sendingar, þar gilda reglur Póstins um að pakkasendingar séu tryggðar upp að 22.500 kr.
Vöruskil: Þar sem um sölu á notuðum varningi er að ræða er aldrei hægt að lofa því að vara sé í fullkomnu ásigkomulagi og án útlitsgalla.
Skilafrestur er 14 dagar frá kaupum. Þar sem hver pöntun er sérpöntuð þá fæst vöru aðeins skilað sé hún gölluð eða ekki samkvæmt pöntun. Tilkynna skal vöruskil á store.unlabel@gmail.com. Boðið er upp á inneignarnótu eða endurgreiðslu. Athugið þegar vöru er skilað ber kaupandi ábyrgð á vörunni þar til hún hefur borist okkur. Kaupandi greiðir sendingarkostnað sé vöru skilað. Sé vara endursend verður hún að berast á heimilisfang Unlabel.
Hafi viðskiptavinur fengið ranga vöru, ber honum að upplýsa unlabel um það við fyrsta tækifæri og mun unlabel við taka fulla ábyrgð á því.
Fyrirvari: Við áskiljum okkur rétti til verðbreytinga án fyrirvara. Allar upplýsingar og verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og myndbrengl. Unlabel áskilur sér rétt til að hætta við pöntun komi í ljós að varan sé ranglega verðmerkt eða uppseld. Í þeim tilfellum er viðskiptavini endurgreitt.
Trúnaður: Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum, nema svo beri skylda gagnvart lögum.
Lög og varnarþing: Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum, gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Unlabel og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum.
Upplýsingar um seljanda: unlabel.is er rekið af Aura ehf.